Þér er sama, þú segir öllum það
sérð hvorki mig né þennan stað.
Það sem við áttum er nú gleymt,
eitthvað sem mig hefur víst dreymt.
Þér er sama hvort sorgin finnur mig
og segir: Ég hugsa ekki um þig.
Að lífið sé bara ljúft og glatt,
sem leikur. Er það nú alveg satt?
sama speki hljómar nú, ekkert innantómt og flatt.
Allt svo indælt nú, ekkert það sem var
er í huganum bara sæla og gleði þar.
Þér er sama, þú segir öllum það.
Sérð hvorki mig né þennan stað.
Ef myrkrið þitt aðrir segjast sjá
og sorgina, þú hlustar ekki á þá.
sama speki hljómar nú, ekkert innantómt og flatt.
Allt svo indælt nú, ekkert það sem áður var
er í huganum bara sæla og gleði þar.
Við vissum hvert við vildum fara, en villtumst ögn af leið.
Við vorum þar sem vonin okkar beið.
En hún læddist burt, læddist burt, læddist burt.
Sama er mér, ég segi öllum það.
Sæll og glaður, eintóm lukka, nema hvað?
Oft logið er þegar á að segja satt
og sorgin undir niðri getur vaxið afar hratt.
Já, það er víst alveg satt
ummm já það er víst alveg satt.
C
Em
D~
Bm
G~m
F
Dm
B
Am
A
Bbm
Fm
D
Bb
G
Gm