Vissir þú að tærnar eru tí – u,
teldu þær og sjáðu: það er satt!
Ef ein er dregin frá þá eru þær ní – u,
og þessi eina hún ber pípuhatt.
Vissir þú að tærnar hafa neglur,
að tærnar búa við mjög strangar reglur,
að tærnar fara oftast á undan þér?
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)
– nema þú gangir aftur á bak!
Margt er líkt með mönnunum og tá – num,
mönnunum þykir ósköp vænt um sig.
Ef þú vilt kynnast betur þessum kjá – num
þá komdu hér og hlustaðu á mig.
Tærnar fara í fýlu eins og þú og ég,
tærnar arka í bræði niður Laugaveg,
tærnar elska gróðurmold og grasið grænt.
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)
Tærnar búa í býsna skrítnum hús – um,
bíddu við og heyrðu allt um það.
Sumar búa í strigaskóm með mús – um
og aðrar fara í stígvélum í bað.
Tærnar búa í randsaumuðum leðurhöllum,
tærnar velkjast um á gömlum tré hnöllum,
tærnar eru alveg að soðna í sundur.
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)
– gatan er löng en táin stutt.
Margt er líkt með mönnunum og tá – num,
mönnunum þykir ósköp vænt um sig.
Ef þú vilt kynnast betur þessum kjá – num
þá komdu hér og hlustaðu á mig.
Tærnar fara í fýlu eins og þú og ég,
tærnar arka í bræði niður Laugaveg,
tærnar elska gróðurmold og grasið grænt.
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)
Já, (já,) já, (já,) já, (já, já, já,)