Betri bíla – Yngri konur

G
Hann var vélstjóri á fraktara og þekkt’ öll heimsins mið,
G
skarpeygur sem ránfugl og sólbrúnn eins og ryð.
C
G
Hann var svo grindhoraður að hann minnti helst á þráð
D
G
en heimsspekingur var hann af Guðs náð.
G
Hann varð að drekka stíft svo tylld’ á honum buxurnar
G
og er hann var í landi brá hann sér á næsta bar.
C
G
við ræddum oft um hamingjunnar innsta leyndardóm,
D
G
þá stakk ‘ann út og sagði hægum róm:
G
C
D
G
„Betri bíla, yngri konur, eldra viskí, meiri pening.“
G
Hann brosti svo að skein í tóbaksbrúnar tennurnar
G
og sagði: „Mér er sam’ um frið og betra veðurfar.
C
Regn og friður er’ að vísu frjóseminn’ í vil
D
G
– en fari það, mín vegna, fjandans til.“
G
Ég sagðist vera skáld, ég vildi sannleik – ekkert spé.
G
Ég sagðist hvorki vilja bíla, viskí eða fé.
C
G
Svo kvaðst ég hafa hugsjónir sem öll mín trú vær’ í.
D
G
Hann leit upp, sagði svo: „Þú lýgur því.“
G
C
D
G
„Betri bíla, yngri konur, eldra viskí, meiri pening.“
G
Það fauk í mig. Ég greip til hans og send’ann út í horn.
G
Þar lympaðist hann niður og hann sagði ekki korn.
C
G
Fyrr en nokkurn varði var ég rokinn beint á dyr.
D
G
Ég hafði aldrei rotað nokkurn fyrr.
G
En langt er orðið síðan. Ég hef hætt að yrkja ljóð
G
og ég er löngu hættur við að breyta minni þjóð.
C
G
Ef sonur minn vill vita hvað mér lífið hefur kennt,
D
G
þá hikstalaust ég segi honum pent: