Bjallan glymur gróft er hennar mál.
Gaggó Vest hefur enga tildursál.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést,
þá er ég alinn upp í Gaggó Vest.
Kennarahræin eru kuldaleg í framan
kannski þykir þeim hreint ekki gaman
að vakna í bítið í vetrartíð
til að vitka draugfúlan æsk u lýð.
Bekkjastofur fyllast af bleikum fésum
Bínum og Jónum og Siggum og Drésum
handalögmál og hefðbundin læti
hundskist þið til að fá ykkur sæti.
Segðu mér hvaða ár hengdu þeir Krist?
Í hvaða bandi spilar Franz þessi Liszt?
Einn týndi bókinni annar gleymdi að lesa.
Af hverju kallar hann okkur lúsablesa?
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó Vest.
gaf mér allt sem reyndist svo best.
Nú er kennarafundur um komandi fár
þeir kalla faraldurinn bítlahár.
Frá Lifrapolli ljót berast org,
lýðurinn dansar um stræti og torg.
Var ekki nóg að fá tjútt og tvist?
Tæpast flokkast þessi öskur sem list.
Drottinn minn er dansæfing í kvöld?
Djöfullinn sjálfur mun tak a hér völd.
Allt í einu er Andrés litli orðinn stór
það gera hinir alræmdu bítlaskór.
Hér verður rokkað og rólað um allt
það rennur vatn undir hörund vort kalt.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó Vest.
gaf mér allt sem reyndist svo best.
Komdu upp að töflunni hvað sem þú heitir
Þú minnir á kúk og öfgasveitir.
Af hverju er haus á herðum þínum?
Taktu nú vel eftir orðum mínum!
Þú verður aldei annað en rukkari,
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó Vest.
gaf mér allt sem reyndist svo best.
Ó kennari minn, ég kveð ég þig nú
með kurt og pí og segi I love you.
Ich Liebe dich, Je taime, ég elska þig.
Er nokkur von til þess að þú elskir mig?
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó Vest.
gaf mér allt sem reyndist svo best.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó Vest.
gaf mér allt sem reyndist svo best.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó Vest.
gaf mér allt sem reyndist svo best.