þeytist um húsið með tuskurnar ( korter í sjö ).
Eins gott að allt sé pússað
því aðeins er korter í stelpurnar.
Set á borðið tertuna, ( úaaa, )
er búin að stífa dúkana, ( úaaa, )
keypti þrenns konar líkjöra
en náði ekki að marenera öndina.
Ég vona að Rúna þambi ekki of mikið
Eins og í Berlínarferðinni ( hún er alki )
og vona að Ása góni ekki á rykið
og blettinn á teppinu í stofunni.
Og hvernig verður svo með Hrafnhildi? ( úaaa, )
Ætli hún tali við Valgerði? ( úaaa, )
Síðast lentu þær í rifrildi
og lokuðu á hvor aðra á snapptjatti.
Við höfum fylgst að í gegnum árin
það gefur mér svo mikið að hitta þær ( vinkonurnar )
Höfum hlegið og þerrað tárin
Hver einasta þeirra er mér svo kær.
Hjálpuðu mér í gegnum skilnaðinn, ( úaaa, )
fóru með mig í bústaðinn, ( úaaa, )
hafa passað öll mín krakkaskinn
ó, mikið er ég þakklát fyrir vinskapinn.
Verð að pússa öll mín gólf
sitjum saman fram til tólf.
kúst og fæjó, kúst og fæjó.
kúst og fæjó kúst fæ æ jo ó.
kúst og fæjó, kúst og fæjó.
kúst og fæjó kúst fæ æ jo ó.
A7
Em
Bm7
A
G
C~m7
Em7
C
E
B7
D
F~m