það var við hótel borg mig bar í hlað
þú blastir við mér eigulega snót
og hjarta mitt sem hélt ég útkul nað
má háum blossa steyptist þér við fót
og aldrei mun ég eygja glaða stund
því öll mín þrá er fjötruð við þitt skaut
ef eignast ég þig ekki svása sprund
þú óskasteinn á lífs mín þyrnibraut
og snögglega ég fílaði mig fitt
mér fannst það jafnvel gott að vera til
og upp frá því var allt mitt hjarta þitt
og alltsaman frá hvirfli niðrí il
já þú ert fágætt eintak alveg stakt
og allt sem best er sæki ég til þín
og hugir mætast hjörtun slá í takt
og hamingjan er okkar ástin mín
og aldrei gat mig einusinni dreymt
að eignast myndi ég svo dýrðlegt hnoss
já það er eins og sála mín úr helju heimt
höndli lífsins kórónu í ofurlitlum koss
það var við hótel borg mig bar í hlað
þú brostir til mín yndisfagra snót
og hjarta mitt samt hélt ég uppþornað
í hlekkjum féll til jarðar við þinn fót