Að einu lífi kemur enginn einn (2, 3, 4)
Margar hendur vinna saman að þessu
Í upphafi þá kunni enginn neitt
Ýmislegt það þarf að læra af lífinu
Með samtaki má vinna mikið verk
Feður og mæðurnar, systur og bræðurna
Afa og ömmurnar, frændur og frænkurnar
Stjúpa og stjúpmömmu, langafa’og langömmu
Og alla þá sem gerðu mig að mér
Svo mörgu er að þakka þetta allt
Án þess að vera sérstaklega að tíunda
Lesa, skrifa, tala og drekka malt (ískalt.. brrr)
Er fólkinu í kringum mann að þakka það
Að ég skipti einhvern máli
Feður og mæðurnar, systur og bræðurna
Afa og ömmurnar, frændur og frænkurnar
Stjúpa og stjúpmömmu, langafa’og langömmu
Og alla þá sem gerðu mig að mér
Án ykkar jafnvel væri ekki neitt
Ég kynni hvork’að tjá mig eða meðhöndla
Og mögulega kæmist ekk’á legg
Þá lífið væri kannski ekkert spennandi
En ég vil helst ekkert ver’að tal’um það
Feður og mæðurnar, systur og bræðurna
Afa og ömmurnar, frændur og frænkurnar
Stjúpa og stjúpmömmu, langafa’og langömmu
Feður og mæðurnar, systur og bræðurna
Afa og ömmurnar, frændur og frænkurnar
Stjúpa og stjúpmömmu, langafa’og langömmu
Svila og svilkonu, mág minn og mágkonu
Hínin og hánana, marglitu fánana
Þetta og kvárana, fjarskylda ættingja
Fóstra og fósturbörn, fóstru og fylgjendur
Vini og vinkonur, staðgöngulangömmur
Palla á gröfunni, bóndann í hlöðunni
Sollu í sjoppunni, Hönnu á vespunni
Kalla á kontornum, Ísak á ísbílnum
Siggu í söngvaborg, börnin á Krakkaborg
Lala, lalalala, lala, lalalala,
Lala, lalalala, lala, lalalala,
Lala, lalalala, lala, lalalala,
og alla þá sem gerðu mig að mér!!!