Eigin leiðir fljótlega fór,
að frá hæl að tá, hér eftir sem þá,
yrðu heillegir og vandaðir skór.
Undir fótum melur óg mór,
mýrlendi og ef til vill snjór.
Ýmist þurrt og blautt, þæfingur og autt,
en á þurrum fótum dýrmætir skór.
Þrifinn er og fagur minn flór,
fríðar skjátur, kembdur minn jór.
Þegar bröllti’ á bak, brosi andartak,
fylla ístöðin eigulegir skór.
Hvort sem þú ert magur og mjór,
meðalþykkur, písl eða stór.
Ef þú niður nærð, nákvæmir í stærð,
alltaf finnast þá á fótum þínum skór.
Hugur minn er reikull og rór,
rislítill en langt frá því sljór.
Og ég dotta svo, dreymir ykkur tvo,
mínir dásamlegu heillegu skór.
Flæðir yfir fleyið mitt sjór.
Fárviðri og blindsker á stjór.
Ef ég sekk í sæ, sennilega hlæ,
því mér fylgja þessir fallegu skór.
E
D
Em
Am
C#7
C
Bm
F#
G
A
B7
F#m