C
A7
D7
G
C
C
A7
D7
Ég leitaði blárra blóma,
G
C
að binda þér dálítinn sveig,
A7
D7
en fölleit kom nóttin og frostið kalt,
G
C
á fegurstu blöðin hneig.
A7
D7
En ég gat ei handsamað heldur,
G
C
þá hljóma sem flögruðu um mig,
A7
D7
því það voru allt saman orðlausir draumar,
G
C
um ástina vorið og þig.
C
A7
D7
G
C
A7
D7
En bráðum fer sumar að sunnan
G
C
og syngur þér öll þau ljóð,
A7
D7
sem ég hefði kosið að kveða þér einn,
G
C
um kvöldin sólbjört og hljóð.
A7
D7
Það varpar á veg þinn rósum
G
C
og vakir við rúmið þitt
A7
D7
og leggur hóglátt að hjarta þínu,
G
C
hvítasta blómið sitt.
A7
D7
Ég veit ég öfunda vorið,
G
C
sem vekur þig sérhvern dag,
A7
D7
sem syngur þér kvæði og kveður þig,
G
C
með kossi hvert sólarlag.
A7
D7
Þó get ég ei annað en glaðst við,
G
C
hvern geisla er á veg þinn skín
A7
D7
og óskað að söngur, ástir og rósir,
G
C
sé alla tíð saga þín.
C
A7
D7
G
C
D7
A7
G
C