jæja Hemmi minn alltaf í boltanum
Þegar ég var lítill fékk í lifrapylsu og grjónagraut um jólin.
Lambalæri og hamborgarar einfaldlega þekktust ekki þá.
Í æsku fékk ég æfinlega hangikjöt og uppstúf yfir jólin.
Á eftir fékk ég alltaf eitthvað sem að allir krakkar þrá.
En þegar ég var stráklingur þá sá ég aldrei jólatré um jólin.
Í staðinn gerði pabbi bara jólatré úr hrífuskafti og vír.
Við dönsuðum í kringum það á moldargólfi í myrkri yfir jólin.
Og mamma kveikti á kerti þá var bærinn okkar aftur hlýr
Heyrðu snöggvast Dengsi minn, þú sleppur ekki í þetta sinn
Þett’ er alveg dagsatt, ( alveg dagsatt )
jæja Hemmi minn – er ekki allt í góðu? – jújú
Æ svona reynum nú að setjast,
slappa af og hætta að metast,
og gleðjast því það er’ að koma jól.
krakkar allir dans’ og syngja
kringum jólatréð og segjum gleðileg jól.
Vertu kátur Hemmi minn og hafðu það sem allrabest um jólin.
Hér er lítill pakki sem að jólagjöf til þín frá mér.
Ég er hérna Dengsi minn með einn hlut sem getur gagnast þér um jólin. nú hvað er það ?
jólatré úr hrífuskafti það er gjöfin handa þér.
já þakka þér kærlega fyrir þetta kemur sér mjög vel
Það verður ofsa gaman því það gerist alltaf ýmislegt um jólin.
Grýla gamla og Leppalúði komu oft í heimsókn þá.
Og jólasveinar ganga um gólf og gefa börnum gjafirnar um jólin.
Gott í skó og brúðu og bolta og bangsa sem að allir þrá.
Heyrðu hérna kallinn minn já þetta var skárr’ í þetta sinn
En er þettað alveg satt ?
Þett’ er alveg dagsatt, ( alveg dagsatt )
jæja Hemmi minn – alltaf í boltanum er þaggi ? – jájájá
Æ svona reynum nú að setjast,
slappa af og hætta að metast,
og gleðjast því það er’ að koma jól.
krakkar allir dans’ og syngja
kringum jólatréð og segjum gleðileg jól.
Heyrðu snöggvast Dengsi minn, þú sleppur ekki í þetta sinn
Þett’ er alveg dagsatt, ( alveg dagsatt )
Æ svona reynum nú að setjast,
slappa af og hætta að metast,
og gleðjast því það er’ að koma jól.
krakkar allir dans’ og syngja
kringum jólatréð og segjum gleðileg jól.
Æ svona reynum nú að setjast,
slappa af og hætta að metast,
og gleðjast því það er’ að koma jól.
krakkar allir dans’ og syngja
kringum jólatréð og segjum gleðileg jól..