Am
Jón Kristófer kadett í hernum
Dm
í kvöld verðu samkoma háð
E
og Lautenant Valgerður vitnar
G
C
E
um veginn að Drottins náð.
Am
Og svo verður sungið og spilað
Dm
á sítar og mandolín tvö.
E7
Ó, komdu og höndlaðu Herrann
Am
það hefst klukkan rúmlega sjö.
Am
Vér hittum þig ungan að aldri
Dm
og útnefndum Guði þitt líf.
E
Til velferðar skyldir þú vinna
G
C
E
og verða hins bágstadda hlíf.
Am
Það fékk á vor fátæku hjörtu
Dm
og færði oss huggun í sál
E7
að hlusta á þitt Hallelúja
Am
og hugljúfa bænamál.
Am
En syndin er lævís og lipur
Dm
og lætur ei standa á sér.
E
Hún situr um mannanna sálir
G
C
E
og sigur af hólmi hún ber.
Am
Þú hneigðist að dufli og daðri
Dm
og drakkst eins og voðalegt svín.
E7
Og hvar er nú auðmýkt þíns hjarta
Am
og hvar er nú vígsla þín?
Am
Svo mikill er illskunnar máttur,
Dm
sem mannshjartað ríður á slig,
E
að undir sig óðara lagði
G
C
E
hann annan eins hermann og þig.
Am
Og síst má það undrun sæta
Dm
þótt sorg vor sé ströng og hörð,
E7
er fargast svo félegur sauður
Am
úr frelsarans voluðu hjörð.
Am
Og ei má með orðum lýsa
Dm
hve angist í sál vorri brann,
E
er fullan léstu þig fleka
G
C
E
á fraktskipið Mary Ann.
Am
Vér getum ei hönd rétt til hjálpar
Dm
þó hendi þig fjörtjón og grand,
E7
þú siglir í farezonen
Am
með synd þína og contraband.
Am
Jón Kristófer kadett í hernum
Dm
ó, kannski þú bjargist samt,
E
og tæmir í botn þinn bikar,
G
C
E
þótt bragðið sé furðu rammt.
Am
Ó, kannski vér eygjum þann ávöxt
Dm
sem iðrun þíns hjarta bar
E7
og heyrum þitt Hallelúja
Am
eins hreint og það forðum var.
Am
Vér biðjum og vonum og bíðum
Dm
í barnslegri einfeldni og trú,
E
að aftur þið fáið að finnast
G
C
E
Frelsari heimsins og þú.
Am
Enn getur þín sál kannski sigrað
Dm
og syndanna ok af sér lagt,
E7
því Guð er svo mikill og góður
Am
eins og General Boot hefur sagt.
Am
Dm
G
E
E7
C