Er líða fer á sumar svo heitt ég þrái þig
hátíðina sem saman höldum við
þá dásamlega í dansi skemmti mér.
Ég gekk í dalsins gleði og gleymdi stund og stað
sá ljósadýrð í fögrum fjallasal
og mér fannst sem heimsins friður
enginn annar staður virtist til
Ég hélt mig væri að dreyma er fyrst ég þig sá
þegar bálið brann á kletti og skuggar liðu hjá
en á þjóðhátíð í eyjum þar gerast ævintýr
hjá peyjum bæði og meyjum í hjörtum gleði býr
Í skjannahvítri tjaldborg þar búa menn í sátt
í góðra vina hópi er þar kátt
og á kvöldin þegar rökkvar
til móts við dimma nótt við höldum rjóð
Ég hélt mig væri að dreyma er fyrst ég þig sá
þegar bálið brann á kletti og skuggar liðu hjá
en á þjóðhátíð í eyjum þar gerast ævintýr
hjá peyjum bæði og meyjum í hjörtum gleði býr
Hátíð í herjólfdal hefur tak á mér
heillar mig og hrífur burt með sér
um allan aldur mun ég eiga í huga mér
minningu um ágústnótt með þér.
Ég hélt mig væri að dreyma er fyrst ég þig sá
þegar bálið brann á kletti og skuggar liðu hjá
en á þjóðhátíð í eyjum þar gerast ævintýr
hjá peyjum bæði og meyjum í hjörtum gleði býr
Cm
G
A#
G#
Dm
D#
F
B7
E
A
C#m
B
F#