Árið 2012

F
C
Gömlu dagana gefðu mér
F
þá gat ég verið einn með þér
F7
Bb
nú tæknin geggjuð orðin er.
C
F
Gömlu dagana gefðu mér.
F
Bb
F
Mig dreymdi að væri komið árið tvöþúsund og tólf
C
F
C
þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf og gólf.
F
Bb
F
Já, veröldin var skrýtin, það var orðið breytt
C
F
því vélar unnu störfin og enginn gerði neitt.
F
Bb
F
Og ekki hafði neitt að gera útvarpsstjóri vor
C
F
C
því yfirmaður hans var lítill vasatransistor
F
Bb
F
og þingmennirnir okkar voru ei með fúlle femm
C
F
því forsætisráðherran var gamall IBM.
F
C
Gömlu dagana gefðu mér
F
þá gat ég verið einn með þér
F7
Bb
nú tæknin geggjuð orðin er.
C
F
Gömlu dagana gefðu mér.
F
Bb
F
Ég álpaðist á bíó þar með ungri stúlkukind
C
F
C
en ekki hélt ég út að horfa á kábojröntgenmynd.
F
Bb
F
Ég dapur fór á barinn og um dobbel bað af stút,
C
F
en er dóninn tók upp sprautu, þá flýtti ég mér út.
F
Bb
F
Mig dreymdi ég væri giftur þeirri sömu sem ég er.
C
F
C
Hún sagði: “Ó, mér leiðist þetta barnaleysi hér”.
F
Bb
F
Ég gerðist nokkuð bráður og vildi bæta úr því strax.
C
F
“Nei, bíddu”, sagði hún “góði, við notum pillur nú til dags”.
F
C
Gömlu dagana gefðu mér
F
þá gat ég verið einn með þér
F7
Bb
nú tæknin geggjuð orðin er.
C
F
Gömlu dagana gefðu mér.
Bb
C
F
En sá draumur, og ég er ánægður með lífið eins og það er.

F

C

Bb

F7