Hún hokin sat á tröppu, en hörkufrost var á
og hnipraði sig saman, uns í kuðung hún lá,
og kræklóttar hendurnar titra til og frá,
um tötrana að fálma sér velgju til að ná.
Og augað var svo sljótt, sem þess slokknað hefði ljós,
í stormabylnum tryllta um lífsins voða ós,
það hvarflaði glápandi, stefnulaust og stirt,
og staðnæmdist við ekkert sem var örvæntingarmyrkt.
Á enni sátu rákir og hrukka hrukku sleit,
þær heljarrúnir sorgar, sem að engin þýða veit,
hver skýra kann frá prísund og plágum öllum þeim,
sem píslarvottar gæf unnar líða hér í heim.
Á enni sátu rákir og hrukka hrukku sleit,
þær heljarrúnir sorgar, sem að engin þýða veit,
hver skýra kann frá prísund og plágum öllum þeim,
sem píslarvottar gæf unnar líða hér í heim.
Hún var kannski perla, sem týnd í tímans haf
var töpuð og götuð svo enginn vissi af,
eða gimsteinn, sem forðum var greyptur láns í baug,
en glerbrot var hún orð in á mannfélagsins haug.
en glerbrot var hún orð in á mannfélagsins haug.
Gm
Bdim7
F~C
G
F
G7
Dm
Bb
C
A7