Þú dregur fram það besta’ í mér,
með alla þína töfra’og stjarna her.
Hver dagur svo heillandi líður hjá
og sveinarnir háværir fara á stjá
en gamla parið síður vil ég fá.
Ég held fast í hefðirnar,
hendist út með gjafirnar.
Þú virkar svo vel á mig desem ber,
þú veitir mér gleði og hlýju.
Þó kaldur og síðastur komið þér
þá hittumst við að ári nýju.
Ó þú desember, Ó þú desember.
með dúnmjúkum snjó, í friði og ró.
Ó þú desember, Ó þú desember.
Feikna ös, allskyns hittingar,
ljósamergð, margskonar skreytingar,
Í hverju húsi ótal freistingar.
Ég held fast í hefðirnar,
hendist út með gjafirnar.
Þú virkar svo vel á mig desem ber,
þú veitir mér gleði og hlýju.
Þó kaldur og síðastur komið þér
þá hittumst við að ári nýju.
Ó þú desember, Ó þú desember.
með dúnmjúkum snjó, í friði og ró.
Ó þú desember, Ó þú desember.
Þú virkar svo vel á mig desem ber,
þú veitir mér gleði og hlýju.
Þó kaldur og síðastur komið þér
Ó þú desember, Ó þú desember.
með dúnmjúkum snjó, í friði og ró.
Ó þú desember, Ó þú desember.
Ó þú desember, Ó þú de – sem – ber.