Að loknum lestri fréttanna
Litgreini sokka og sameina (Einn, tveir, áfram gakk)
Fylgist með fótabúnaði (Í hans náttúrulega umhverfi)
Og sé að þeim fjölgar, stöku sokkunum
Í gráman grannaskinnin falla eins og flís við rass
Og þegar öllu þeirra bauki er á botninn hvolft
Úúú, er ekki mál að linni?
Er ekki kominn tími til að skora gufuna á hólm?
Vatteruð kona í kvartbuxum (hjarta, ertu fransbrauð?)
ég kikna í göngulimunum (fýsn, ertu hordauð?)
Ég sagði: „Kannski væri þjóðráð að við kíktum í
og rifjuðum upp gengna slóð?“
Hún sagði: „Á laugardögum líta barnabörnin við,
en annars er ég bara góð.“
Úúú, er ekki mál að linni?
Er ekki kominn tími til að skora gufuna á hólm?
(Að loknum lestri fréttanna)
(Litgreini sokka og sameina)
F~~B
C~
C~maj7
Bbm7
Ebm7
F~~A~
Ebdim
F
F~maj7
Bmaj7