sko þarn´er fögur freyja (lalala)
skal hennar vegna deyja (lalala)
Í bardaga við dreka fjóra fimm.
Sjá frækinn sigur veitist mér.
Þá systur mínar æpa, „Eyjólfur“,
æ góði besti gættu nú að þér.
La,ra,la,la,la,la,la,la,ra,la,la,la,la, Eyjólfur
æ góði besti gættu nú að þér
ef vill mig konan þýðast (lalala)
strax lífið yndis þýða (lalala)
Jafnt okkur báðum það ég segi satt
Þá sannast mundi hver ég er
Þá systur mínar æpa, „Eyjólfur“,
æ góði besti gættu nú að þér.
La,ra,la,la,la,la,la,la,ra,la,la,la,la, Eyjólfur
æ góði besti gættu nú að þér
ég skyldi rækta henni rósa kvist (rósa- kvist)
ef ég þá fengi varir hennar kysst
Dyr myndu opnast inn í draumaheim.
Djúp yrði sælukenndin mér.
Þær kyrja einum rómi, „Eyjólfur“,
æ góði besti gættu nú að þér.
mér framhjá stöðugt strunsar (lalala)
og óskir mínar hunsar (lalala)
Vonleysi grefur sig í geð og sál.
En glaðna yfir tíðum fer. (uss, uss, hey,)
Þá systur mínar æpa, „Eyjólfur“,
æ góði besti gættu nú að þér.
La,ra,la,la,la,la,la,la,ra,la,la,la,la, Eyjólfur
já orðinn hress og hefur gáð að sér.
La,ra,la,la,la,la,la,la,ra,la,la,la,la, Eyjólfur
já orðinn hress og gáði loks að sér.