Gústi og Gunna

C
Nú syngjum við lagið um Gústa og Gunnu
F
C
og gæfunnar þeirra spor.
F
C
Að búa til stelpur þau klárlega kunnu
G
er í karlinum leyndist fjör.
C
Þá var hún Gunna klár í að kela
F
C
og kyssa sinn flotta mann.
F
C
Svo leiddi hún kappann um mýri og mela
G
C
Því mikið hún elskaði hann.
C
Þá komu blessuðu börnin í heiminn
F
C
Og bleiurnar tóku við,
F
C
er fæddist hún Sigrún – sælleg og dreymin
G
og setti þar allt á hlið.
C
Lovísa Inga svo fljótlega fylgdi
F
C
Fjörmikil hress og kát
F
C
en svo þegar Þórey í heiminn sigldi
G
C
Var sungið í hverjum bát.
F
Hjá stelpunum öllum í Eyjanna sprangi
C
æskan var ljúf og góð.
G
Þá nutu þær lífsins í foreldra fangi
C
sem fluttu þeim skáldanna ljóð.
F
Með Tóta var farið og Gunnu í Geisla
C
og glaðst útí Elliðaey.
G
Þar var nú aldeilis vináttu veisla
F
C
og veidd nokkur lunda grey.
C
Já svona var lífið hjá Gústa og Gunnu,
F
C
gæfan þar réði för.
F
C
Að búa til stelpur þau klárlega kunnu
G
er í karlinum leyndist fjör.
C
Á þjóðhátíð fjölskyldan söngvana saman
F
C
syngur við dalsins bál.
F
C
Hjá orginal fólki alltaf er gaman
G
C
Í Eyjum við gleði skál x2

F

C

G