Gaman væri að vera með þér, (a ha ha)
en vandamálið það er (a ha ha)
hvað þú ert alltaf úrill við mig, (a ha ha)
það ætti að sálrannsaka þig.
þér ferst að tala sem ert þumbari og svín,
þér ferst að senda tóninn til mín,
sem sérð ekki neitt nema sjálfan þig,
og skellir svo allri skuldinni á mig,
en þú kannt ekki að skammast þín
að skemma heimilisins frið.
Ég er húsbóndi á heimili hér (það heldur þú já!)
og hræðist ekki vælið í þér (jæja góði!)
og ég pípi á allt kerlingakvein (o, svei attan!)
hvers vegna bjóstu ekki ein?
þú mátt nú þakka fyrir að eiga mig,
en þú varst nú alveg óður á eftir mér,
af eintómri vorkunn ég bjargaði þér
frá því að verða Hafnarstrætisróni og ræfilsgrey,
svo ertu að rífa þig, – ja svei!
Hvað óhljóð eru í þér? (hvað meinarðu?)
Æptu ekki svona að mér (var ég að því?)
ég veit að ég er alls enginn Guð (það vita nú fleiri!)
en það er ansi mikið puð.
að lifa í hjónabandi hávaðalaust,
og hamast sumar vetur og haust,
við að elska rétt eins og fyrr,
oft vill það verða ógnarstyr.
af því við elskum ekki nóg.
C~
D~7
F
A7
G7
D7
C
A
D
Bb
G
G~
C7
E7