Hver læðist inn í svefnherbergi og lætur pakk’ í skó
meðan litlu börnin sofa í ró?
Það er einn jóla- jóla- jóla-sveinn,
kannski hann Gáttaþefur jólasveinn.
Hver kíkir oní pottana og krækir sér í mat
og af kjöti borðar á sig gat?
Það er einn jóla- jóla- jóla-sveinn,
Það er hann Bjúgnakrækir jólasveinn.
la, la, la, la, la, la, la, la,
Hver gægist ósköp laumulega á gluggana um nótt
meðan góðu börnin sofa rótt?
Það er einn jóla- jóla- jóla-sveinn,
Það er hann Gluggagægir jólasveinn.
Bráðum koma blessuð jólin
Hvern langar einhver kynstur jólakerti til að fá,
hann er kúnstugur á svipinn sá?
Það er einn jóla- jóla- jóla-sveinn,
Það er hann Kertasníkir jólasveinn.
Hver skundar inn og hurðinni hann skellir eftir sér,
rauða skotthúfu á höfði ber?
Það er einn jóla- jóla- jóla-sveinn,
Það er hann Hurðaskellir jóla sveinn.
bomma bomma, bomma bomma,
bomma bomma, bomma bomma,
bomma bomma, bomma bomma,
Og Kjötkrókur og Skyrgámur og líka Stekkjastaur
og svo Stúfur og hann Gilja gaur.
Þeir eru jóla- jóla- jóla- jóla- jólasveinarnir
og bestu grey sem við um jólin gleymum ei.
og bestu grey sem við um jólin gleymum ei.