Afsakaðu allan þennan reyk inni,
Ég var bara að líta til með steikinni.
hún er eins og hugur manns.
Loksins ertu kominn hingað á minn fund;
Finn svo gjörla þetta er töfrastund.
Hún þarf korter enn í það allra minnsta.
við setjumst að borðum – a-ha.
Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
Hvernig smakkast svo? Þetta er yndislegt!
Jahá, en mest er þó gaman – a-ha.
Að við skulum vera saman – a-ha.
Góða veislu má ei skorta eftirrétt.
Eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt.
nær algjörlega fitusnauð.
Allir þurfa jú að passa línurnar .
Viljum ekki enda eins og svín, er það?
Fáum okkur ögn meiri rjóma.
Æ, manstu vikuna, okkar í Flórens?
Er við drukkum það saman – a-ha.
Smökkum sörurnar, mömmukökurnar,
Makkarónurnar, eplabökurnar.
Hvernig smakkast svo? Þetta er dásamlegt!
Jahá, en mest er þó gaman – a-ha.
Að við skulum vera saman – ha-ha.
Mmmm, og svo koníak með því
Meira laufabrauð? Eða marensfrauð?
Hvar er konfektið? Er það uppurið?
Hvernig smakkast svo? – Þetta er æðislegt!
Jahá, en mest er þó gaman – a-ha.
Að við skulum vera saman – a-ha.
Hvar er beilísið? Hvar er sjampeinið?
Bættu toffí í æriskoffíið!
Hvernig smakkast svo? – Þetta er unaðslegt!
Jahá, en mest er þó gaman – aa-ha.
Að við skulum vera saman – a-ha.