Það er ekki skrýtið að hér sé allt í hönk
Bandið taldi í diskóið en endaði með pönk
Risotto á pönnunni en á diskinn komu svið
Á ofsahraða á tindinn en ennþá fljótar niður á við
allar götur beinar, engin ljón á veginum
við greiddum fyrir partíið með morgundeginum
Við gengum nakin eftir götunum
Eins og keisarinn í sparifötunum
Eftir veisluna við sitjum öll í súpunn i
Nú þarf hver og einn að bíta í skjaldarrendurnar
Spýta grimmt í lófana og bretta upp ermarnar
Éta það sem úti frýs en þýða kannski fyrst
Því allir þurfa bömmerinn að éta af bestu lyst
Þannig getur þjóðin allri uppbyggingu flýtt
Og innan fárra ára byrjað ballið upp á nýtt
Við gengum nakin eftir götunum
Eins og keisarinn í sparifötunum
Eftir veisluna við sitjum öll í súpunn i
Skjálfandi úr kulda á kúpunni
Við gengum nakin eftir götunum
Eins og keisarinn í sparifötunum
Eftir veisluna við sitjum öll í súpunn i
Skjálfandi úr kulda á kúpunni
Við gengum nakin eftir götunum
Eins og keisarinn í sparifötunum
Við gengum nakin eftir götunum
Eins og keisarinn í sparifötunum
Ab~Bb
G~B
Dm~C
A7
Am7
G~A
Dm
Dm7
G7
Ebmaj7
Em7
G
Gm7
F
Bmaj7
Bb~C
Fmaj7