regnbogi við foss einn flytur
frumort ljóð og landvætt vitur
vaktar þögul hvert mannsbarn fjall og fjörð
litadýrð er í landsins móti
líf er að finna í hrauni og grjóti
á meðan upp á heiðum vindar
hér norðurljós á nóttum dansa
um nakinn himinn og fjöllin ansa
dalalæða strýkur landsins harða og særða svörð
hreidýr upp á heiði lýtur
höfði mosa og lyngið bítur
fjöllin anda lífi í vakra
hér er eitthvað sem engin sér
en allir segjast skynja hvað það er
hér er eitthvað sem engin sér
þá vissu hver maður í brjósti ber
á lygnum stað í lautu dafnar
lítill ungi og kröftum safnar
tignarlegur haförn skimar jöklum prýdda jörð
drynur orka þungra fljóta
í fjarska lyftir tófa höfði
því hér er eitthvað sem engin sér
en allir segjast skynja hvað það er
hér er eitthvað sem engin sér
þá vissu hver maður í brjósti ber
hér fetar slóðir feðra sinna
fólk sem hefur verk að vinna
landið talar gegnum akra sína skóga og skörð
við þúfu hverja þögnin dvelur
og þúsund alda fjársjóð felur
F~C
Dm7
Eb~G
Caug
Gm7
C~G
Am
D~E
F
G~B
D
C
Am7
F~G
G
F~dim7
D~F~