Landið fýkur burt

Em
B7
Úr verki verður fátt,
Em
B7
um verk mun síðar spurt.
Em
Am
Alltaf á leiðinni
Em
B7
til auðnanna á heiðinni
Em
Am
Em
á meðan landið fýkur burt.
Em
B7
Við notum of mörg orð,
Em
B7
um orð mun varla spurt.
Em
Am
Augljóst mun yfirleitt
Em
B7
að orðin ei stoða neitt
Em
Am
Em
á meðan landið fýkur burt.
C
B7
Em
C
Am7b5
B7
Brotna sandöldur sífellt upp við gróður      strönd,
C
B7
Em
C
Am7b5
B7
brjóta víkur og voga inni í heiðar      lönd,
Em
það stoðar lítið strá og lyng
B7
Em
þó stór og mikil höldum þing
B7
Em
með loforðum, því landið fýkur burt.
Em
B7
Sú æska er erfir land
Em
B7
um arfinn gæti spurt.
Em
Am
Hvar ertu móðir mín?
Em
B7
Hvar ertu þjóðin mín?
Em
Am
Em
á meðan landið fýkur burt.
Em
Am
Em
B7
Em
Am
Em
C
B7
Em
C
Am7b5
B7
Kveða vindarnir vögguljóð og feigðar      spár
C
B7
Em
C
Am7b5
B7
yfir hríslum sem engu taki lengur       ná,
Em
því moldin öll, sem áður var
B7
Em
þar allt í kring um ræturnar
B7
Em
og líf þeim gaf, er löngu fokin burt.
Em
B7
Svo ríkir auðnin ein
Em
B7
með andlitið dautt og þurrt.
Em
Am
Hún gengur um garð þinn senn.
Em
B7
Geturðu sofið enn
Em
Am
Em
á meðan landið fýkur burt?
Em
Am
Em
á meðan landið fýkur burt?
Em
Am
Em
á meðan landið fýkur burt?

B7

Em

C

Am

Am7b5