Ég man þá daga er einn ég var,
oft við gluggan minn sat ég einmana.
Ég þráði gleði og hamingju,
ákaft leitaði en aldrei fann.
Svo birtist þú og líf mitt fékk tilgang að nýju,
Og sólin skein inn um gluggan minn.
Lífið er lag, sem við syngjum saman tvö dag eftir dag.
Þú og ég, í framtíðinni göngum tvö sama veg.
Lífið er lag, sem við syngjum saman tvö, um ókomin ár.
þú og ég, göngum saman gleðinnar veg, gleðinnar veg.
Við fengum sömu vonir og þrár
og nú lífið brosir okkur við.
Er einn ég var féllu fjölmörg tár,
það var sem enginn skyldi mig.
Svo birtist þú og líf mitt fékk tilgang að nýju,
Og sólin skein inn um gluggan minn.
Lífið er lag, sem við syngjum saman tvö dag eftir dag.
Þú og ég, í framtíðinni göngum tvö sama veg.
Lífið er lag, sem við syngjum saman tvö, um ókomin ár.
þú og ég, göngum saman gleðinnar veg, gleðinnar veg.
Svo birtist þú og líf mitt fékk tilgang að nýju,
Og sólin skein inn um gluggan minn.
Lífið er lag, sem við syngjum saman tvö, dag eftir dag.
Þú og ég, í framtíðinni göngum tvö, sama veg.
Lífið er lag, sem við syngjum saman tvö, um ókomin ár,
þú og ég, göngum saman gleðinnar veg.
F
Dm7
Em7
Am
Em
G
D
A
Bb
Gm
C
Fm7