D
Ég hélt útí haga
G
með hálftóman maga;
A7
D
Obb,bobb – bobb, bobb, bobb, bíðið nú við!
G
á öndinni stóð ég.
A7
D
Obb, bobb – bobb – Hvað haldið þið?
D
Ég heilsaði hestum,
G
sem hátignum gestum.
A7
D
Obb,bobb – bobb, bobb, bobb, bíðið nú við!
D
Þeir gáfu mér gætur,
G
sem grænmetisætur.
A7
D
Obb, bobb – bobb – Hvað haldið þið?
D
Með gaulandi garnir
G
og gúmskórnir farnir;
A7
D
Obb,bobb – bobb, bobb, bobb, bíðið nú við!
D
eitt áheit ég efndi
G
á ættarmót stefndi.
A7
D
Obb, bobb – bobb – Hvað haldið þið?
D
Þar átti að eta
G
og yrkingar meta.
A7
D
Obb,bobb – bobb, bobb, bobb, bíðið nú við!
D
Því stjórnaði spúsa
G
hans Samvinnu-Fúsa
A7
D
Obb, bobb – bobb – Hvað haldið þið?
D
Fólk sveif létt um salinn;
G
þar sveiflaðist halinn.
A7
D
Obb,bobb – bobb, bobb, bobb, bíðið nú við!
D
Mig konurnar kysstu;
G
úr klaufunum hristu.
A7
D
Obb, bobb – bobb – Hvað haldið þið?
D
Við margar ég mynntist
G
og mörgum ég kynntist.
A7
D
Obb,bobb – bobb, bobb, bobb, bíðið nú við!
D
Í gemsum má gjalla
G
ef glatt er á Hjalla.
A7
D
Obb, bobb – bobb – er ekki við
A7
G
D