Stórkostlega stjörnubjarta nótt
streymir yfir heiminn, svört og hrein.
Í þér get ég ekkert hugsað ljótt,
ekki steðjar að mér hætta nein.
Sit hér í skapi ljúfu og léttu
indælt fyrir litla engisprettu.
Stórkostlega stjörnubjarta nótt
stjörnur brosa til mín skært og bjart.
Skýin vilja burtu fara fljótt,
feimin við það dýra himnaskart.
Jörðin er með ráði réttu,
indælt fyrir litla engisprettu.
Er það kannski óskastjarnan mín?
óska mér, já óska, ef ég má.
Óskastjarna á himni hátt,
hjartans bæn þú vita mátt:
Ef þú vilt mér gefa gaum.
ég get sagt þér leyndan draum
Stórkostlega stjörnubjarta nótt,
stígðu nú í kofann til mín inn.
Góða drauma get ég til þín sótt
glottir að mér tunglið, vinur minn.
Þessi nótt er eins og sniðin
fyrir gamla leikfangasmiðinn.
Er það kannski óskastjarnan mín?
óska mér, já óska, ef ég má.
Óskastjarna á himni hátt,
hjartans bæn þú vita mátt:
Ef þú vilt mér gefa gaum.
get ég sagt þér leyndan draum
A
Bm7
E~A
A7
D~A
A~dim7
G~B
Bb
E
Bm7~A
D
F~m
G~C
Dm
Am
G~
Am7~G
F~G
G
C
Em
Dm7
E7
F
F~7
C~dim7
Dm7~C
C~7