G
C
Ég fargaði hryssu á hausti sem leið,
G
D
hún var hnarreist og gljáandi skjótt.
G
C
Ég hafði átt fjölmarga ferlega reið,
G
D
G
á þeim farkosti er dimmdi af nótt.
D
G7
Ég vissi engan betri né blíðari vin
C
A7
D
eða brjóst með svo óskeikult þor.
G
C
Ég elskaði Skjónu og allt hennar kyn,
G
D
G
sem í afdölum fellur úr hor.
G
C
Svo hélt ég til Víkur í Háskólann minn,
G
D
þar sem hámenning þjóðanna sat
G
C
og klöngraðist hingað í kjallarann inn,
G
D
G
fékk mér kaffi og pantaði mat.
D
G7
Hann kom – en ég þagði og átti’ ekki orð,
C
A7
D
þegar ungfrúin rétti mér krás
G
C
því þar var hún Skjóna mín borin á borð.
G
D
G
Ýmist buff eða steik eða glás.
A
D
Ég hakkaði, Skjóna mín, hjartað úr þér,
A
E
eins og heiðingi í afguðatrú.
A
D
Ég keyrði þig forðum í klofinu á mér.
A7
E
A
í kjaftinum bryð ég þig nú.
E
A
Með kartöflum át ég þann einasta vin,
D
B
E
sem aldregi brást mér í neyð,
A
D
og lét oní magann í gegnum mitt gin
A
E7
A
það góðhross sem forðum ég reið.
A
D
Þá fannst mér sem heyrði ég hneggið í þér
A
E
og horfði á þinn liðuga fót.
A
D
Og hlustaði’ á vesalings magann í mér,
A
E
D
sem möglaði og streittist í mót.
E
A
Þú titraðir ögn milli tannanna í mér,
D
B
E
ég tuggði þig, Skjóna mín góð.
A
D
Svo fann ég í maganum frýsið í þér
A
E7
A
G
og fjörkippi og náttúruhljóð.
C
F
Og næst ét ég Léttfeta, Gretti og Glám
C
G
og Gulltoppi sting ég í munn.
C
F
C
Og Borgfjörð og Skagfjörð og Blesa og Gám,
C
G
C
þá er bikarinn drukkinn í grunn.
G
C
Nú get ég ei elskað það graðhestakyn,
F
D
G
sem gerir mér borðhaldið kross.
C
F
Ég stanga úr tönnunum sin eftir sin:
C
G7
C
Það er saurlíf að matreiða hross.