Eitt sinn fór ég vegi allrar veraldar
með vinum mínum Melkior og Baltasar.
upphaflega ædolstjarnan var
Það blundaði í mér ferðaglaður frumhippi
við fórum þetta meira svona í flippi.
á ferðabransans fyrsta road-trippi
Það var fyrir langa löngu
en sagan hefur aldrei máttinn misst
Það var fyrir langa löngu
það var svona korter fyrir Krist
Við römbuðum á fjárhús á Airbnb
og barnið reyndist einmitt vera inní því
fékk ýmiskonar dót úr Duty-free.
Núna vita allir hver hann Jesús var
En enginn hvað þeir hétu þessir úlfaldar
En það var fyrir langa löngu
en sagan hefur aldrei móðinn misst
Það var fyrir langa löngu
það var sirka korter fyrir Krist
Bb
Eb~Bb
F
Gm
F7
Cm7
Bb~D
Eb
Bbmaj7
D7