C
F
C
Milli jóla og nýárs um nótt við komum,
Am
F
C
í nístingskulda, slyddu og éli’.
F
C
Am
Syneta hét skipið sem skreið við landið,
C
Am
F
C
með skaddað stýri og laskaða vél.
C
F
C
Við austurströndina stóðum á dekki,
Am
F
C
störðum í sortans kólguský,
F
C
Am
drunur brimsins bárust um loftið,
C
Am
F
C
bæn mín drukknaði óttanum í.
F
C
Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa,
G
C
ljósin sem komu þorpinu frá,
F
C
Am
um síðir þau hurfu í hríðina dökku,
C
Am
F
C
um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá.
C
F
C
Þessa nótt skipið á Skrúðanum steytti,
Am
F
C
skelfing og ótti töku öll völd.
F
C
Am
Í bátana komumst við kaldir og þreyttir,
C
Am
F
C
í kolsvarta myrkri beið aldan köld.
C
F
C
Þá nótt við dóum, drottinn minn góður,
Am
F
C
drukknuðum bjarg’lausir einn og einn.
F
C
Am
Himinn og haf sýndust saman renna,
C
Am
F
C
okkar síðasta tak var brimsorfinn steinn.
F
C
Innst í firðinum sáum við ljósin lýsa,
G
C
ljósin sem komu þorpinu frá,
F
C
Am
um síðir þau hurfu í hríðina dökku,
C
Am
F
C
um hjörtu okkar flæddi lífsins þrá.
C
F
C
Í þangi við fundumst, en fimm ennþá vantar,
Am
F
C
fjörunni aldan skilaði oss,
F
C
Am
í hús á börum við bornir vorum
C
Am
F
C
með bláa vör eftir öldunnar koss.
C
F
C
Ef þú siglir um sumar, vinur,
Am
F
C
og sérð við Skrúðinn brimsorfin sker,
F
C
Am
viltu biðja þeim fyrir er fórust,
C
Am
F
C
þeim fimm sem aldrei skiluðu sér.
Am
G
C
F