Afi minn þú ert orðinn gamall
að ég falsaði nafnið þitt á víxil
og ef þú skrifar ekki undir þetta nýja skuldabréf
þá læt ég þennan gamla víxil falla á þig
og það er því eins gott fyir þig
Skrifaðu bara nafnið þitt
eða það verður selt ofan af þér afi minn.
þú ert hjá mér aðra hvora helgina
og síðustu helgi þú varst hjá mér
brotnaði borðið í stofunni hjá mér
og ég veit að það varst þú sem gerðir það
og næstu helgi hef ég forræðið
og þá ætla ég að rassskella þig
það þýðir ekki að væla mömmu í
því mér er tryggður þessi umgengnisréttur
Ég hitti þig á balli í gærkvöldi
og sá það strax að ég elskaði þig
en þú vildir ekkert með mig hafa
En nú ætla ég að leitað þér
og þegar ég finn þig mun ég skemmta mér.
Ég mun rassskella þig og berja þig
þar til þú lærir að elska mig.
Þú varst besti vinur minn
er við fórum saman ísumarbústað
og ég fór í kaupstaðinn að kaupa kaffi
og hvað varst þú þá að gera með konunni minni
ég veit það ekki en mig grunar ýmislegt
og næst þegar ég hitti þig
með felgulykli sem ég geymi
í skottinu á bílnum mínum
í skottinu á bílnum mínum
og Baldur minn þú verður drepinn
Ég er bara venjulegur maður
og yfirleitt sæll og glaður.
En í morgun var mér nóg boðið
því að ég fékk ekki morgunblaðið
fyrr en klukkan var orðin níu
og krakkaandskotinn sem ber út blöðin
hann má nú fara að passa sig
því í fyrramálið mun ég leeeeemjan.
Skilaðu því sem þú fékkst lánað
Þú ert kannski eldri en ég
Skilaðu því sem þú fékkst lánað
ef þú vilt ekki verða barinn.
Skilaðu því sem þú fékkst lánað
annars verðurðu blár og marinn.
og þegar ég kem heim til þín
Ég seldi bílinn þinn amma
vegna þess að mig vantaði pening.
Það þýðir ekki mig að skamma.
og þú hefur ekkert við þennan bíl að gera
vegna þess að þú ert að drepast úr elli.
Og ég ætla núna bara að eyða peningnum.
Því ég á heimtingu á arfinum
já, ég á heimtingu á arfinum.
fyrirgefðu að ég rotaði þig í gær.
Ég bara missti stjórn á mér
því að þú varst alltaf að röfla í mér.
En nú er mér runnin reiðin
og ég vil koma aftur heim
og þegar þessi sjónvarpsþáttur er búinn
þá ætla ég að koma inn í kvennaathvarf
og við höldum æðislegt geim.
Það var hringt í mig í morgun frá bankanum
sagt ég væri yfir á reikningum
og konan sem hringdi í mig
heitir Guðrún Guðmundsdóttir
og ég veit hvar hún á heima
og ef hún lagar ekki stöðuna á reikningum
ætla ég að koma og berja hana
og rispa bílinn hennar líka
Ég hitti þig í gær á förnum vegi
Þú hafðir loksins hlustað á spóluna
sem ég sendi þér fyrir mörgum mánuðum síðan.
Og þér fannst lögin mín léleg
sem sýnir bara hvað þú ert mikið fífl.
því ég er búinn að hefna mín
já, ég er búinn að hefna mín.
og mér þótti svo vænt um þig.
Við vorum alltaf svo góðir vinir
þar til að dóttir þín fór frá mér .
Því hún sagði að ég væri alltaf að berja sig
og hún er bara geðsjúklingur og lygari
og það ert þú líka og einn daginn ætla ég