Fögur blika ljósin á grænum greinum
glæsilegir pakkar sem við í leynum
læddumst til að skreyta svo lítið bæri á
ekki mátti vita ekki mátti sjá
Svona var það heima við sögðum bæði
svona vil ég hafa í ró og næði
við fundum okkar jól og útkoman er
að þetta er komið frá þér og þetta er kannski frá mér
Þú og ég um jól ein í alfyrsta sinn.
Orðin svona stór en í hjarta mér finn
hvar stelpa lítil er sem langar heim til sín
en hér erum við og jólin okkar.
Okkar fyrstu jólum við aldrei gleymum
eins og dýran fjarsjóð þær myndir geymum
við tvö og allt er nýtt og annað en var
í okkar heimi orðin svona stór.
Þú og ég um jól ein í alfyrsta sinn.
Orðin svona stór en í hjarta mér finn
hvar stelpa lítil er sem langar heim til sín
en hér erum við og jólin okkar.
svo verður kannski einhver seinna til að segja frá
hvað allt var hljótt þetta kvöld
við horfðum hvort í annars augu áttum veröld nýja
bara tvö undrandi börn ástin er blíð um jól
Þú og ég um jól ein í alfyrsta sinn.
Orðin svona stór en í hjarta mér finn
hvar stelpa lítil er sem langar heim til sín
en hér erum við og jólin okkar.
Dm
C
Fm
Am
F
Gm
Bb
Cm
Ab
Eb
G
D
Em