Tóta litla tindilfætt

C
G7
Hún var hýr og rjóð,
C
hafði lagleg hljóð,
G7
sveif með söng um bæinn,
C
sumarlangan daginn.
G7
Hún var hér og þar,
C
á hoppi alls staðar,
D7
G
D7
G
en saumaskap og lestri, sinnti’ hún ekki par.
C
G
Tóta litla tindilfætt,
G7
C
tók þann arf úr föðurætt
F
að vilja lífsins njóta,
G
C
veslings litla Tóta.
G7
Ýmsum gaf hún undir fót,
C
umvandanir dugðu’ ei hót.
F
C
G7
A7
„Aðrar eru ekki betri’ ef að   er    gætt,“
Dm
G7
C
svaraði hún Tóta litla tindilfætt.
C
G7
Mamma Tótu var,
C
mesta ógnarskar
G7
með andlit allt í hrukkum,
C
og hún gekk á krukkum.
G7
Eitt sinn upp hún stóð,
C
æpti: „Dóttir góð,
D7
G
D7
G
sæktu mér að lesa, sögur eða ljóð.“
C
G
Tóta litla tölti’ af stað,
G7
C
til að kaupa Morgunblað.
F
„Seint ert þú á labbi,“
G
C
segir Fjólupabbi.
G7
„Ekkert varðar þig um það,
C
ég þarf að fá eitt Morgunblað.
F
C
G7
A7
Maður getur alltaf á sig blómum    bætt,“
Dm
G7
C
svaraði hún Tóta litla tindilfætt.
C
G7
Gamla konan beið,
C
gerðist býsna reið.
G7
Er Tóta gekk í hlaðið,
C
hún hrifsaði Morgunblaðið.
G7
„Að bjóða bókaorm,
C
blað með svona form.
G7
G
G7
G
Ég heimta’ að fá að lesa, Harðjaxl eða Storm.“
C
G
Tóta litla tölti’ af stað,
G7
C
til að kaupa annað blað.
F
Lengi mátti’ hún ganga,
G
C
að leita’ að Oddi og Manga.
G7
Farnir voru fuglar þeir,
C
til fundarhalda’ báðir tveir.
F
C
G7
A7
blaðakóngar hafa löngum lýðinn frætt,
Dm
G7
C
og að þeim leitar Tóta litla tindilfætt.

A7

D7

G

C

G7

Dm

F