Ég vil geta vaxið eins og tré
í allar áttir alveg langt uppfyrir hné
og hækkað og stækkað og teygst og tognað
og látið síðan eins og ekkert sé
Mig langar til að verða voða stór
stærri ‘en hundraðþúsund manna karlakór
verða stærri og lengri og mjórri og meiri
og láta síðan eins og ekkert sé
Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
og vaxa og vaxa upp í loftið
Vaxa miklu meira en áður hefur sést
Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
og vaxa og vaxa í allar áttir
Ég vil gnæfa yfir allan heim
og ná með hausinn alveg langt, langt uppí geim
vera stærstur og hæstur og lang, lang lengstur
og láta bara eins og ekkert sé
Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
og vaxa og vaxa upp í loftið
Vaxa miklu meira en áður hefur sést
Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
og vaxa og vaxa í allar áttir
já, ég vil vaxa í allar áttir
Gmaj7
Em
G
D
Bm
E~G~
Asus4
D~F~
A
G~dim7