Vorið er í vændum, vaknar fræ í jörð
Birtir yfir bændum, blána fjallaskörð
Ranka við sér rætur, renna gegnum svörð
Grösin fara á fætur, fríkka tún og börð
Hlýnar allt og hlánar, hopar myrkrið svart
Skyggni sífellt skánar, skyndilega er bjart
En veturinn senn víkur, vorinu sendir hret
Sem brátt þó burtu rýkur bara meinlaust fret

E7
D
A
A7
F#7
Bm
D7
G
B7
Gm
Em
Baug
D6